Sálmarnir 1

<< Sálmarnir 1 >>
Psalm 1 Icelandic
 

1 Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa Guð að háði,

2 heldur hefir yndi af lögmáli Drottins og hugleiðir lögmál hans dag og nótt.

3 Hann er sem tré, gróðursett hjá rennandi lækjum, er ber ávöxt sinn á réttum tíma, og blöð þess visna ekki. Allt er hann gjörir lánast honum.

4 Svo fer eigi hinum óguðlega, heldur sem sáðum, er vindur feykir.

5 Þess vegna munu hinir óguðlegu eigi standast í dóminum og syndugir eigi í söfnuði réttlátra.

6 Því að Drottinn þekkir veg réttlátra, en vegur óguðlegra endar í vegleysu.